Fíasól er flottust
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Fíasól er flottust er fjórða bók Kristínar Helgu Gunnarsdóttur um Fíusól, sem nú er orðin níu ára gömul. Sem fyrr býr hún með foreldrum og tveimur eldri systrum og er ákaflega uppátækjasöm. Bækurnar um Fíusól hafa verið sérlega vinsælar meðal barna og ekki að ósekju, því hér er blandað saman næstum fantastískum ævintýrum og hinu ofurhversdagslega, með dágóðum skammti af uppeldisyfirbragði - allt sett fram af hæfilegri alvöru.
Bækurnar um Fíusól eru næstum eins og einskonar smásagnasöfn, með sögum sem tengjast saman í eina heild, en bækurnar skiptast í nokkra kafla sem hver um sig segir frá einu uppátæki. Hér er til dæmis sagt frá skólaverkefni um drauga sem verður til þess að fjölskyldan fer að heimsækja draugasetrið með dramatískum afleiðingum - ekki síst fyrir pabba Fíusólar. Fíasól er mikil útivistarmanneskja og útilegur koma nokkuð við sögu, í einum kaflanum fer hún með afa og ömmu í sumarbústað, en sú ferð endar með ósköpum, og í öðrum kafla langar hana svo mikið að sofa í tjaldi að hún skrúfar rúmið sitt í sundur og tjaldar inni í herberginu sínu. Það innanhúss-útilegu-ævintýri er svo endurtekið þegar þau félagarnir Ingólfur ákveða að nú sé komið sumar og heimta að tjalda úti í garði, en það er enn svo kalt að á endanum flýja þau inn í stofu með kúlutjaldið og sofa þar vært. Og svo koma jólasveinar og sjóræningjar við sögu.
Duration - 2h 11m.
Author - Kristín Helga Gunnarsdóttir.
Narrator - Kristín Helga Gunnarsdóttir.
Published Date - Wednesday, 17 January 2024.
Location:
United States
Description:
Fíasól er flottust er fjórða bók Kristínar Helgu Gunnarsdóttur um Fíusól, sem nú er orðin níu ára gömul. Sem fyrr býr hún með foreldrum og tveimur eldri systrum og er ákaflega uppátækjasöm. Bækurnar um Fíusól hafa verið sérlega vinsælar meðal barna og ekki að ósekju, því hér er blandað saman næstum fantastískum ævintýrum og hinu ofurhversdagslega, með dágóðum skammti af uppeldisyfirbragði - allt sett fram af hæfilegri alvöru. Bækurnar um Fíusól eru næstum eins og einskonar smásagnasöfn, með sögum sem tengjast saman í eina heild, en bækurnar skiptast í nokkra kafla sem hver um sig segir frá einu uppátæki. Hér er til dæmis sagt frá skólaverkefni um drauga sem verður til þess að fjölskyldan fer að heimsækja draugasetrið með dramatískum afleiðingum - ekki síst fyrir pabba Fíusólar. Fíasól er mikil útivistarmanneskja og útilegur koma nokkuð við sögu, í einum kaflanum fer hún með afa og ömmu í sumarbústað, en sú ferð endar með ósköpum, og í öðrum kafla langar hana svo mikið að sofa í tjaldi að hún skrúfar rúmið sitt í sundur og tjaldar inni í herberginu sínu. Það innanhúss-útilegu-ævintýri er svo endurtekið þegar þau félagarnir Ingólfur ákveða að nú sé komið sumar og heimta að tjalda úti í garði, en það er enn svo kalt að á endanum flýja þau inn í stofu með kúlutjaldið og sofa þar vært. Og svo koma jólasveinar og sjóræningjar við sögu. Duration - 2h 11m. Author - Kristín Helga Gunnarsdóttir. Narrator - Kristín Helga Gunnarsdóttir. Published Date - Wednesday, 17 January 2024.
Language:
Icelandic
Höfundur og útgefandi
Duration:00:00:11
Fíasól er flottust
Duration:00:08:56
Fíasól og stóra sundslysaferðin
Duration:00:19:49
Fíasól og sjóræningjaruglið
Duration:00:22:24
Fíasól og skræfan
Duration:00:17:21
Fíasól og eldkláru jólasveinarnir
Duration:00:15:09
Fíasól og tækjalausi dagurinn
Duration:00:18:56
Fíasól og eilífa útilegan
Duration:00:13:09
Fíasól og brottför Hansínu
Duration:00:15:00
Ending Credits
Duration:00:00:11